Baughamar

Áformað er að byggja 60 íbúðir við Baughamar í Hafnarfirði. Íbúðirnar verða af ýmsum stærðum með útsýni yfir Hafnarfjörð og Reykjanesið. Verkefnið er Svansvottað og hönnun tekur mið af gæðum og endingu. Stefnt er að hefja framkvæmdir vorið 2023.

Baughamar er staðsettur í dalverpi umlukið Skarðshlíð til norðurs, Vatnshlíð til austurs og Hamranesi til suðurs.

Einn helsti styrkur hverfisins er nálægð þess við náttúrulega umgjörð, fagurt landslag sem einkennist af aflíðandi gróinni hlíð (Skarðshlíð) til suðurs og austur, hraunbreiðum í svæðinu miðju og svipsterkum klettavegg í suðvesturs.

Fjöldi íbúða
60
Áætluð verklok
2024
Arkitekt
TEIKNA – TEIKNISTOFA ARKITEKTA

Á svæðinu er risinn skóli ásamt leikskóla og tónlistarskóla, þjónustu og snyrtileg atvinnustarfsemi auk opinna svæða, garða, leiksvæða.

Á svæðinu rís blönduð byggð þar sem gott jafnvægi ríkir milli heimilis og vinnu í vistvænu hverfi sem býr yfir góðum tengslum við náttúrufar svæðisins.  Horft er til hverfisins í heild þar sem reynt verður að „tryggja fjölbreytt, sveigjanlegt, öruggt og örvandi umhverfi sem hvetur til skapandi athafna fólks á öllum aldri“.

Mikil innviðauppbygging er að eiga sér stað og hefur þjónusta á svæðinu aukist til muna síðustu mánuði og ár. Á Ásvöllum er aðstaða til íþróttaiðkunar til fyrirmyndar og á árinu 2021 var fyrsta skóflustungan tekin að nýju og glæsilegu knattspyrnuhúsi sem eflir og styrkir aðstöðuna. Opnað var fyrir umferð Ásvallabraut sem tengir ný íbúðahverfi við Kaldárselsveg.