Allar fréttir

Baughamar 1 – sala hafin

24/03/2025

Skuggi

Sala er hafin á glæsilegum íbúðum við Baughamar 1 í Hafnarfirði. Í húsinu eru 33 íbúðir, allt frá tveggja til fjögurra herbergja íbúðir. Þær afhendast fullbúnar án gólfefna og er afhending áætluð í mars. Lögð er áhersla á vandaðar íbúðir með góða hljóðvist og góðum loftgæðum. Eldhúsinnréttingar eru frá þýska framleiðandanum Nobilia, umboðsaðili er GKS. Eldhús er fullbúið tækjum eins og helluborði, viftu, innbyggðum ísskáp, innbyggðri uppþottavél og ofni. Mikil áhersla er lögð á vandaðan frágang utanhúss. Merkt bílastæði fylgir íbúð á lóð eða í lokuðu bílastæðahúsi.

Baughamar er í Svansvottunarferli og hönnun tekur mið af gæðum og endingu.

Svansvottun gerir ríkar kröfur til orkunýtingar byggingar, gæðastjórnun í byggingarferlinu og notkun öruggra og umhverfisvænna efna í byggingar.

Áshamar – sala hafin

© 2024 - Skuggi ehf - Allur réttur áskilinn - Persónuverndarstefna