Skuggi hefur komið að ýmsum byggingaverkefnum í gegnum tíðina. Allt frá einbýlishúsum upp í stór fjölbýli. Bæði er um að ræða nýbyggingar og endurbætur á eldra húsnæði. Skuggi hefur mest byggt íbúðarhúsnæði en einnig atvinnuhúsnæði.
Íbúðir til sölu
Fyrri verk
Allt

Framkvæmdir eru hafnar á glæsilegum fjölbýlishúsum við Breiðhöfða 15-19 í Reykjavík. Á lóðinni eru tvær byggingar með alls 50 íbúðum með sameiginlegum bílakjallara og stórum hjólageymslum. Byggingarnar eru 5-6 hæða með kjöllurum undir. Breiðhöfði 15-19 er nálægt grunnþjónustu s.s Borgarlínu og er örstutt í Elliðarárdalinn útivistarperlu Reykjavíkur.
Skoða söluvef

Framkvæmdir eru hafnar á glæsilegum fjölbýlishúsum við Baughamar 1 og 3 í Hafnarfirði. Í húsunum eru 60 íbúðir, allt frá tveggja til fjögurra herbergja íbúða. Verkefnið er í Svansvottunarferli og hönnun tekur mið af gæðum og endingu. Baughamar er staðsettur í dalverpu umlukið Skarðshlíð til norður, Vatnshlíð til austurs og Hamranesi til suðurs. Einn helsti styrkur hverfisins er nálægð þess við náttúrulega umgjörð, fagurt landslag sem einkennist af aflíðandi gróinni hlíð (Skarðshlíð) til suðurs og austur, hraunbreiðum í svæðinu miðju og svipsterkum klettavegg í suðvesturs.
Lesa meira

Sala er hafin á glæsilegum fjölbýlishúsum í Svansvottuðu ferli í Hamranesi í Hafnarfirði. Í húsunum eru 140 íbúðir, allt frá tveggja herbergja til fjögurra herbergja íbúða. Íbúðirnar eru bjartar og nútímalegar með hagnýtu skipulagi - afhendast fullbúnar með gólfefnum. Glæsilegt hverfi í nágrenni við stórkostlega náttúru, Hvaleyrarvatn, Helgafell, Kleifarvatn o.fl. Áætlað er að fyrri hluti verkefnisins verði tilbúið til afhendingar haust 2023 og síðari hluti í byrjun árs 2024.
Lesa meira

Efstaleitið í Reykjavík er eitt stærsta íbúðaverkefni sem Skuggi hefur komið að. Alls er um að ræða 360 íbúðir sem byggðar voru á árunum 2017–2021. Ásamt íbúðareiningunum var vinsæll verslunar- og þjónustukjarni á jarðhæð mikilvægur hluti af framkvæmdinni.
Lesa meira

Í Skuggahverfi í Reykjavík reisti Skuggi íbúðarbyggingu við Lindargötu 39. Byggingin er 11 hæða turn með 36 íbúðir.
Lesa meira

Í Skuggahverfi í Reykjavík reisti Skuggi íbúðarbyggingu við Vatnsstíg 20-22. Byggingin er 16 hæða turn með 41 íbúð.
Lesa meira

Á Lindargötu 28 í miðbæ Reykjavík reisti Skuggi fjölbýlishús með 25 íbúðir. Um var að ræða byggingu smáíbúða í miðbæ Reykjavíkur en verkefnið var í samræmi við stefnu Reykjavíkur um að fjölga smáíbúðum og þétta byggð.
Lesa meira

Fjögur fullbúin og einstaklega fallega hönnuð einbýlishús við Búhamar, nærri golfvellinum í Vestmannaeyjum, með einstöku útsýni yfir vesturhluta eyjanna.
Lesa meira

Enduruppbygging á Gamla Pósthúsinu við Vestmannabraut í Vestmannaeyjum. Um er að ræða 17 fullbúnar íbúðir í þessu sögufræga húsi.
Lesa meira

Endurbygging á einkar glæsilegu húsi í hjarta bæjarins við Vestmannaeyjahöfn. Útsýnið yfir bryggjuna er stórfenglegt. Framkvæmdir stóðu yfir 2020-21.
Lesa meira

Skuggi tók við Vatnsstíg 16–18 þegar byggingin var fokheld og fullkláraði bygginguna. Íbúðarhúsnæðið er 42 glæsilegar íbúðir á 18 hæðum í Skuggahverfinu í Reykjavík.
Lesa meira

Skuggi kom að uppbyggingu fjölbýlishúsana við Mánatún 3-5. Um ræðir eftirsótt 55 íbúða hús á 6-9 hæðum auk 2ja hæða bílageymslu.
Lesa meira

Uppgerð heildareignar við Laugaveg. Húsið skiptist í verslunarrými á jarðhæð og fimm íbúðir á annarri og þriðju hæð.
Lesa meira

Bygging á 4000 fm atvinnuhúsnæði með skrifstofum og lagerhúsnæði fyrir Námsgagnastofnun og Orf líftækni.
Lesa meira